www.signy_95.central.is
blabla
~Mánaðarins~
~Viðtöl~
Iconzz

""

"Cute"
"Nature"
"Clothes"
"Clothes"
15.02.2008 21:40:21 / signy

Hmmm!!

Sko ég hef verið spá.. ég bjó mér til aðra síðu á bloggar.is og er búin að setja svolítið inn á hana því mér finnst blogcentral orðið leiðinlegt:$  Alltaf að bila og eikkað þannig...
En ég veit ekki hvort ég hætti með síðuna eða ekki alla vega ný síða www.signy95.bloggar.is  kíkka og kvitta:p

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 20:30:11 / signy

Öskudagur:D

Hææhæ og gleðilegan öskudag...;D
Ja á öskudaginn í dag var ég svona 80's gella;)
Ég var með, Ester, Söndru, Arlindu,Svavar, Ragnar og Margrét.
Ester var: Sígunakona
Sandra: Trúður
Arlinda: Kínakona
Svavar: Hermaður
Ragnar: Star wars karl
Magga: Fótboltamaður..

Við byrjuðum á því að vakna klukkan 06:45 og þá fengum við okkur að borða og klæddum okkur í búningana ég og Ragnar. Mamma túbberaði hárið svo á mér og spreyjaði það bleikt;) Hún málaði mig líka frekar mikið heh;o) 
Við mamma og Ragnar fórum svo til Öggu mömmu Esterar og Svavars og ætluðum að bíða hjá þeim þar til að Magga, Arlinda og Sandra mundu koma. Við bönkuðum og bönkuðum og klukkan var bara korter í 8 eins og Agga sagði að þá ættum við að koma.. Við bönkuðum og bönkuðum en þá höfðu þau sofið yfir sig, en þau voru samt fljót að skipta um föt og mála sig:Ð Þegar allir voru komnir lögðum við af stað til Dalvíkur;D Mamma mín og Agga keyrðu. Arlinda og Magga fóru með Ester í bíl eða Öggu og Svavari líka, en Sandra fór með mér í bíl og Raggi auðvitað með okkur;D Við byrjuðum á að fara niður í allar fiskvinnslurnar og græddum mikið nammi:Þ Svo var farið í Kaupfélagið, Olís, Raðhúsið, Apótekið og fleira á Dalvík. En klukkan var um 11 þá lögðum við af stað niður á ströndina. Við byrjuðum á Hauganesi og fórum í Ekta fisk. Síðan fórum við á verkstæðið. Þegar við vorum komin á Árskógssand (BESTI STAÐURINN) fórum við í Bruggsmiðjuna, búðina, skrifstofuna og Reitsvík.
Þegar allt þetta var búið fórum við heim til Esterar og Svavars og skiptum namminu. En nú á ég næstum heilann haldapoka af nammi:P
Klukkan 5 var öskudagsballið upp í skóla:D Ég, mamma og Ragnar fórum á þetta ball. Það var farið í ásadans, happdrætti og slegið köttinn úr tunnunni en við mættum svo seint að við náðum því ekki. En það var bara ágætt á þessu balli:) Þegar ég kom heim borðaði ég og fór í sturtu þvoði "bleika,, hárið mitt:P   

En úff hvað ég er búin að gera langt blogg BARA SORRY nenni alls ekki að blogga meir og enda er Raggi orðinn pirraður og vill fara í tölvuna..
FoodFoodFoodFood


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 08:43:33 / signy

Hæhæ í skólanum:D

Hææj einmitt núna er ég að blogga hér í skólanum:D
Ja við erum núna í tölvum og það er frí því að Bjarni er í fæðingarorlofi þannig að allir fá að gera eitthvað frítt. Flestir eru í leikjum eða horfa á myndbönd;D Ég er bara á minni síðu og ákvað að blogga bara:P Þetta er fyrsti tíminn, næst er handavinna og svo heimilisfræði bara það sem eftir er.

En bara ég nenni ekki að vera að blogga mig langar að fara í leiki eða eitthvað þannig
Bææj:*
DanceDanceDance


En þessi mynd var tekin á Miðvikudaginn þetta er bekkjarmyndin 7-8 bekk:D


COOL:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 18:27:26 / signy

Var að pæla...

Hérna ég var að pæla í að hafa svona þema í hverju bloggi...

Þannig að á

Mánudögum:
Animals
verður dýra-þema

Þriðjudögum:
Make Up
Verður make-up þemi

Miðvikudögum:
Nature
Verður blóma-þemi

Fimmtudagur:
TV and Movies
Verður eikkað sjónvarps eða bíómynda þemi

Föstudagur:
Dance
Verður dans-þemi

Laugardagur:
Friends
Verður Best friends-þemi

Sunnudagur:
Food
Verður svona nammi og matar þemi


En alla vega þá er ég að meina með þessum þemum að ég seti alltaf svona dans icon á föstudögum.. ég er ekki að meina að þegar það er kannski föstudagur að þá tali ég bara um dans... Heldur blogga ég bara mín eðlilegu blogg og svo ef það er Föstudagur þegar ég blogga set ég þá svona Dans icon og þannig....
Þeir sem ekki fatta endilega  kommenta og bara spyrja:Ð


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 12:30:23 / signy

Afmæli

Hæhæ :D

Í gær þá hélt Sandra upp á afmælið sitt og það var geðveikt skemmtilegt;D
Það var horft á myndina æji ég man ekki hvað hún heitir alla vega var hún mjög skemmtileg.. Það voru bakaðar pitsur og nammikaka mjög gott:PSvo var farið í spurningakeppni en hins vegar fengum við 19 stig og hitt liðið 22 stig en það var allt í lagi;'] Svo var farið í kreistuleikinn hehe, morðingjann og einhvern annan mjög skemmtilegan leik.

Ég gaf Söndru svart hárband og eyrnalokka...
Party

En ég föstudags kvöldið fórum ég, Ester og Sandra út á Dalvík á söngvakeppnina Samfés í Pleizinu. Mér fannst eiginlega allir flottir sko:Ð
En í fyrsta sæti var: Melkorka
annað sæti var: Svavar
þriðja sæti var: Gyða

Allt voða flottir krakkar en því miður nenni ég ekki að blogga meir;Ð
Moods


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 20:49:09 / signy

Hæææj

HææææjImage hosting by TinyPicImage hosting by TinyPicImage hosting by TinyPic

Hæhæ einmitt núna er Tína hundurinn hennar ömmu hjá okkur og verður í pössun í 3 daga;'] Hún er svo mikil krúsídúlla:Ð En alla vega fór ég í skólann og það byrjaði á íslensku, svo stærðfræði,,, frímínútur og svo myndmennt.. í myndmennt erum við að taka upp svona sketza þar sem við gerum kennargrín.. Ég leik Önnu Baddý skólastjóra.
Þeir sem leika í þessu kennaragríni eru:
Signý: Anna Baddý skólastjóri
Ester: Kristrún kennari 1-2 bekk
Doddi: Kristján aðstoðarskólastjóra
Arnór: Bjarna umsjónarkennara
Linda: DÍSA hehe kennari 3-4 bekk
Sandra: nemandi
Júlía: Helena sundkennari
Andri: Brynjólfur kennari 5-6 bekk

En alla vega koma líka svona auglýsingar sem við leikum til dæmis á ég að leika einhverja konu í shampoo auglýsingu og svo leikum við einhverja geymslu auglýsingu þið hafið kannski heyrt hana eða kannski ekki. En í þessu atriði leik ég róna sem er sofandi í ruslatunnu hehe..
Svo vorum við að pæla í að hafa svona Glitnirs auglýsingu og fá kannski krakka úr 1 eða 2 bekk til að segja eitthvað hehe;D


En nenni ekki að blogga meir bææjthe heart

AnimalsAnimalsAnimalsAnimals



» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 17:55:27 / signy

Skólinn byrjaður:)

Cute
Hæhæ nú er skólinn byrjaður:S
Það var svona fínt bara að fara í hann á mánudaginn bara það var ömulegt að vakna;'[ En það var gaman að hitta krakkana og allt það;)
En ætla aðeins að lýsa dögunum fyrir sig!
Á mánudaginn vaknaði ég klukkan 07:30  og bara græjaði mig í skólann. Þegar ég kom í skólann var fyrsti tíminn Stærðfræði, fyrsta korterinn vorum við bara spjalla svona hvað við gerðum um jólin og hvað við fengum í jólagjafir og svoleiðis. Annar tíminn var íþróttir og Steini íþróttakennari var veikur þannig að við ákváðum bara að fara í fótbolta;D Þriðji tíminn var Enska og við gerðum bara það sem við áttum að gera og 4 tíminn var Íslenska og af því að Arnór átti afmæli þann dag þá fengum við frí og fengum að fara í tölvustofuna;D Og síðasti tíminn var Lífsleikni og við fórum að taka jólaskrautið niður úr gluggum og svoleiðis.. En eftir skóla fór ég til Lindu og svo fórum við til Söndru og þar var Ester og við fórum bara gera eikkað;D
En í dag þá bara fór ég í skólann og allt það stuff kom svo heim ætlaði að fara að læra fyrir stærðfræðina ... NEI gat það nú verið að bókin væri upp í skóla og ég varð soldið svekkt þannig að ég gat ekki lært heima en ég ætla að læra bara tvöfalt á morgun hehe ...  eeen hef svo lítið að gera er bara búin að vera að horfa á sjónvarpið og vera í tölvunni fer svo kannski eikkað út í kvöld...
En nenni ekki að blogga meir bæj;D
CuteCuteCute


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 14:38:36 / signy

Jólagjafir:D

Hæhæ er ekki kominn tími að ég segi svona hvað ég fékk í jólagjöf:D
Alla vega fékk ég margt flott:D

Mamma&Pabbi&Ragnar: DVD spilari og þetta er líka svona karókí dæmi og það fylgdu 2 míkrafónar með

Elín&Kristján: Náttföt og ilmvatn,sturtusápu og bodylotion allt saman í pakka

Ester: Englastyttu

Sandra: Sápur og eyrnalokka

Linda: Englastyttu, blýant og nammi.

Amma Steina: Sagan af Tracy Beaker (bók) og 2000 kall

Ella amma & Palli afi & Steinar frændi : náttföt og  Einu sinni var dramadrottning í ríki sínu (bók)

Andrea frænka: kerti

Rósa amma og Kiddi afi: hálsmen

Amma og afi í sveitinni (Helga og Siggi) : Geðveika svarta skó

Tína (hundurinn hennar ömmu) : Ástfangin prinsessa (bók)

Dagbjört, Óli, Steinunn B & Verónika J : Snyrtiveski og pink sugar (ilmvatn)

Jens og Helga Sólveig : Pottþétt 45 (geisladiskur)

Stebbi Frændi og Gunna : Nammi og svona litla jólastelpu

Magga frænka: peningaveski

Signý frænka: Ástfangin prinsessa (bók) en ég fékk hana þannig að ég þarf að skipta og það er allt í lagi

Sigurbjörg og Jónatan: Loforðið (bók)
 

Ég er mjög glöð með gjafirnar og þakka þá bara fyrir mig og ef ég er að gleyma einhverju bara segið mér það en alla vega bææj
Holidays


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 14:27:54 / signy

Gleðileg jól;D

Hæhæ mig langar bara rétt svona að blogga lítið jólablogg;D
Ég vil bara Óska öllum Gleðileg jól og Farsælt komandi ár...
Bara vil senda svona  litla jólakveðju:Ð
Takk fyrir það liðna!
Hehe en alla vega  í morgun kom jólasveinar og gáfu gjafir og ég fékk myndina Material girls;D
En samt þá ætla ég að enda þetta blogg
bæj &&&&...
GLEÐILEG JÓL ;D

HolidaysHolidaysHolidaysHolidaysHolidays


 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 14:22:00 / signy

22. Desember ;*

Hæhæ;*
Mér langaði bara að skella inn einu bloggi sama hvað það verður stutt eða langt:Ð Alla vega þá eru 2 dagar í jólin og ég er svoo spennt:haha: En það er samt næstum enginn snjór hjá okkur og það er svolítið leiðinlegt en annars ekki því ég held að það eigi að snjóa á morgun á ÞORLÁKSMESSU;D  En alla vega ég er búin að vera fá margt flott í skóinn þótt ég viti þetta jólasveinadæmi hóhó ;Ð
Ég á bara svo erfitt með að trúa því að jólin eru eftir 2 daga hehe:] Ég gef 5 jólagjafir og þær eru til Esterar, Söndru, Lindu og Andreu frænku;D  

En á fimmtudaginn þá voru litlu jólin í Árskógarskóla og eins og vanalega senda allir jólakort og ég sendi til allra í skólanum;D Arnór og Andri í 8. bekk léku jólasveina og það var geðveikt fyndið:Ð En svo var bara dansað í kringum jólatréið og þannig... En hérna heh á miðvikudaginn áður en þá var 7 og 8 bekkur að skreyta jólatréið fyrir litlu jólin sem myndu verða á fimmtudaginn og ég þurfti að klifra upp GEÐVEIKT háan stiga og þá meina ég sko geðveikt hátt og ég var skíthrædd en ég klifraði upp þennan stiga til að setja  snúrur í samband og eikka þvílíka og ég var skíthrædd:^)
Hehe en ég kannski blogga meira á aðfangdag...
En áður en ég hætti við bloggið þá verð ég að sýna ykkur lag sem við í bekknum sömdum það er geðveikt....

Á sjöunda degi jóla hann jónas færði mér:
7 rauða Arnór
6 tíða Andra
fiiiimfalda Esteri
4 júlíur
3 spaka Dodda
2 Söndrur til
og ein talandi Signý á grein
HAHA það er svo mikill húmor í þessu en við eigum samt eftir að semja fyrir lindu björk en þetta var samt bara smá djók hehe bæææj


HolidaysHolidaysHolidaysHolidays


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 19:28:42 / signy

Hæhæ

Góðan Daginn...
Bara sorry að ég hafi ekkert bloggað!!
En ég ætla aðeins að segja frá gærdeginum....
Ég gisti hjá Dodda því ég var að passa Þórhildi með honum og ég var farin um hádegið..
Þá fór ég bara í tölvuna og lét mér leiðast..;S  ´
Svo um hálfjögur leitið fór ég í bíó með Elíni á Sydney White sem var geðveikt skemmtileg sko,,,;D
Svo kom ég heim og fór aðeins í tölvuna og um 7 leitið þurfti ég að fara að græja mig fyrir aðventukvöldið!! Það er svona messa háflgerlega en ég var í aðventukórnum þannig að við sungum eikker lög þarna... þá gengur maður í hvítum englaponsjó eða bara hvítu ponsjói og með gyltan englabaug.. við sungum Í betlehem er barn oss fætt - Amen - Forðum í bænum Betlehem....:Ð
Það var bara mjög gaman,,,;D
Svo talaði bara séra Hulda eikkað...

En í dag þá fór ég bara í skólann en Bjarni kennari er í fæðingarorlofi svo þetta var nú eginlega ekki beint skóladagur kannski svona bara frídagur í skólanum hehe.. það byrjaði sko að við áttum að fara í stærðfræði en Kristján skólastjóri sagði að 1 og 2 bekk vantaði kennara í leikfimi þannig að við fengum að sleppa stærðfræði og vera með 1 og 2 bekk í leikjum í leikfimi;D
Svo í 2 tíma áttum við að fara í leikfimi en af því að Steini leikfimiskennari var ekki fengum við bara að vera í fríi og leika okkur í salnum,,,,
3 og 4 tíminn var enska og íslenska en Kristján leyfði okkur bara að vera í tölvum og leika okkur í þeim og það var geðveikt..
&&& síðasti tíminn var Lífsleikni og þá fórum við að föndra fyrir jólin,, ég er að föndra engil:Ð
Þetta var alla vega skemmtilegur skóladagur.....;D

En bæbæ .. er að samt að pæla í því að setja myndir frá Sydney White




» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 18:49:22 / signy

Beztustu vinir;D

TinyPic image
Elska þessa mynd....
Frá vinstri röð efst: Linda-Arnór-Sandra-Doddi....
Svo er það ég sem ligg oná þeim og Ester þarna neðst niðri;**

Lovee jú<3

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 20:52:47 / signy

Smáblogg

 h

Hæhæ.. ákvað bara að skella inn svona einu bloggi..;D
Mamma og pabbi Esterar eru komin heim frá Tékklandi og Þýskalandi svo Ester er ekki lengur í pössun hjá okkur. Ester var búin að vera hjá mér í 8 daga og þessir dagar voru mjög skemmtilegir,,,;D Fimmtudaginn síðasta fór mamma og Elín til Rvk með Elíni til læknisins sem þurfti aðeins að tala og þegar mamma kom heim úr Rvk keypti hún handa mér bláa peysu, geðveikt sætan bangsa gulan og líka bláan handa Esteri, Kawasaki skó geðveikt flottir´,, ljósbláir og svo keypti hún handa mér nýjan SÍMA ;'] Síminn er svona grár og rauður samsung samlokusími geðveikt flottur;* En á laugardaginn eða bara í gær þá var laufarbrauð hjá ömmu Steinu á Dalvík og þá mættu ég,mamma, Ragnar,pabbi, Elín, Kristján, Ella amma, Dagbjört, Steinunn Birta og Verónika Jana: ) Ég skar út mikið af kökum og borðaði mikið nammi;Ð Svo um kvöldið eldaði Óli frændi mexíkóska súpu sem var geðveikt góð... Eftir súpuna skipti ég um föt og labbaði ég heim til Andreu því ég var að fara að gista hjá henni:Ð Um kvöldið fórum við í tölvuna og þegar við ætluðum að fara í Olís að kaupa nammi 5 mín í 10 þá vorum við búin að suða í Lindu mömmu Andreu hvort við mættum fara út en hún sagði alltaf nei af því að við meigum ekki vera úti eftir klukkan 8 því þar er löggan á ferli á Dalvík en á endanum sagði Linda já og við hlupum eins og brjálæðingar niður í olís en jájá þá var Elín sys og kall sem vinnur með henni að loka Olís;S Ég og Andrea ætluðum þá að labba niður í videoleguna og kaupa nammi eða snakk en þegar við vorum sirka háflnaðar keyra Elín og Kristján frjamhjá og skutla okkur í videoleguna og aftur heim til Andreu. Við keyptum okkur bara grænar Lays... Horfðum á einhverja jólamynd fórum í tölvuna og fórum að sofa um hálftólf...
Í dag þá var vakið okkur því Andrea var að fara í laufarbrauð á Krossum hjá ömmu sinni og ég mátti koma með. Við skárum út kökur og fórum svo í feluleik með Bríeti og Kristjáni frænda Andreu. Borðuðum hádegismatinn .. og vorum bara í feluleik næstum allann daginn og það var geðveikt gaman. Við fórum svo aftur heim á Dalvík og ég og Andrea hengum í tölvunni í Bubble Trouble.. Svo var bara komið að sækja mig ... Ég er búin að vera að horfa á næturvaktina og aðeins í tölvunni og sit hér núna að blogga;D

Bæj bæj
Song LyricsMeaningful

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 17:52:20 / signy

Hææj

Hæhæ;*
Það er búið að vera mjög skemmtileg helgi og ég ætla aðeins að segja frá henni. 
                                        
Á föstudaginn eftir skóla kom Tína hundurinn hennar ömmu í pössun og gistir hjá okkur í viku en fer samt á föstudaginn næsta:'( En ég fór bara út með Tínu þennan dag og lék mér aðeins við hana..:'D Sandra kom til mín og ég, Sandra,Arnór og Doddi fórum á lækjarbakka að gera stíflu í lækinn og ég leyfði henni aðeins að synda í læknum;P
                                         
Svo á laugardaginn fór ég til Esterar með Tínu og við létum hana hlaupa lausri á túninu og þannig þar til Sandra kom vorum við smá úti og fórum svo heim til mín;D Sandra var svo að fara til Hríseyjar svo ég og Ester fórum bara að horfa á Cinderella story sem var á stöð 2 bíó;'] Ester fór svo bara heim og ég fékk mér að borða.

                                          
Á sunnudaginn hringdi Doddi í mig og spurði hvort ég,hann, Ester, Linda og Armend kæmu með mér í skógreitinn því hann ætlaði að fara með Bjart hundinn hans afa síns og ég myndi fara með Tínu. Það var mjög gaman í skógreitnum sko!! Svo fór ég bara aftur út með Tínu seinna um kvöldið.
                                          
Á Mánudaginn var frí í skólanum því það var starfsmannadagur. Andrea frænka hringdi í mig um ellefu leitið um morguninn og spurði hvort ég gæti leikið og hvort hún mætti koma til mín. Ég sagði bara já og svo kom hún til mín.. Við fórum bara að horfa á sjónvarpið og í sims2 þar til að Doddi kom og spurði hvort ég kæmi aftur í skógreitinn með Bjart og Tínu;D Sandra slóst í hópinn með okkur og svo bara löbbuðum við aftur af stað. Það var geðveikt gaman.. Bjartur og Tína voru alltaf að labba í kringum mig og Dodda og flæktu okkur þannig að ég datt og svo Doddi oná mig;o]  Það var geðveikt fyndið og þetta gerðist sko nokkrum sinnum sko,,, svo missti Doddi Bjart og hann hljóp í burtu og Sandra og Andrea hlupu á eftir á meðan ég og Doddi reyndum að standa upp hehe;D   Þetta var mjög skemmtileg ferð;) Svo fórum ég og Andrea heim í sims2 og fórum aðeins að leika við Tínu og svo bara þurfti Andrea að fara;~S En svona var eiginlega mánudagurinn;D
                                         
Núna er Ester komin í pössun því að mamma hennar og pabbi eru í Tékklandi og Þýskalandi;* Hún verður hjá okkur í 8 daga;D
Jæja kveð að sinni;D
                                         
Bæj
Electronics

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12